Söfnun fyrir Garðar Smára: Missti aleiguna sína í brunanum.

Settur hefur verið upp söfnunarsjóður fyrir Garðar Smára Helgason sem missti aleigu sína í brunanum í Norðurgötu 17. nóvember síðastliðinn.

Garðar Smári er 22 ára gamall og er á örorku vegna einhverfurófs. Foreldrar hans standa nú fyrir söfnun til að hjálpa honum að koma sér aftur á lappir. Á Facebook síðu þeirra kemur fram að hann keypti íbúðina í janúar sl. og var hún nýuppgerð. Var þetta einnig hanns fyrsta eign.

Það sem eftir stendur af húsinu eftir brunann.
Mynd: Kaffid.is

„Því miður var hann ekki með innbústryggingu vegna misskilnings milli hans og tryggingafélagsins. Og þar sem íbúðin var mjög gömul að þá dugar brunabótamat hússins engan veginn fyrir endurbyggingu þess.
Hún dugar heldur ekki fyrir áhvílandi láni á íbúðinni. Þetta er skelfileg staða sem við óskum engum að þurfa að lenda í.

Til að létta undir með honum hef ég stofnað styrktarreikning 0302-13-300033 og kt 130969-3649
Yndislega fólk ef þið hafið einhver tök á að leggja honum lið þá yrði ég einstaklega þakklátur. Margt smátt gerir eitt stórt“. Skrifar Helgi Garðarsson faðir Garðars Smára.

Má bjóða þér að deila þessari síðu?
  • 6
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
    6
    Shares