Ítalski söngvarinn og einn ástsælasti tenór heims, Andrea Bocelli mun halda sögulega tónleika í Kórnum laugardaginn 23. maí á komandi ári. Þessu er greint frá á vef sena.is
Bocelli er þekktur fyrir að hafa eina fallegustu rödd heims og hefur selt yfir 90 milljón plötur á heimsvísu. Hann átti þátt í að færa sígilda tónlist í samtímann þar sem lögin hans hafa náð fyrsta sæti á öllum helstu topplistum heims. Celion Delion hefur látið þau orð falla að ef guð hefði söngrödd, þá myndi hún hljóma eins og röddin hans Bocelli.

Mynd: senalive.is
Kórnum í Kópavogi verður í fyrsta sinn umbreytt í sitjandi sal, en einungis verður boðið upp á númeruð sæti og lögð áhersla á að salurinn verði hlýr og notalegur.
Tekið er fram að hljóð og svið verði á heimsmælikvarða og ásamt Bocelli kemur fram 70 manna sinfóníuhljómsveit SinfNord, kór frá Söngvasveitinni Fílharmóníu og sérstakir gestir. Hér er því hægt að lofa einstakri og ógleymanlegri upplifun.
Tæplega átta þúsun sæti verða í boði á sex mismunandi verðsvæðum og miðarnir kosta frá 12.990 kr., sem þýðir að hér er um að ræða stærstu sitjandi tónleika fyrr og síðar á Íslandi, en samanborið við tónleika hans erlendis er um talsvert meiri nánd að ræða en víðast hvar annars staðar.
Tónleikarnir verða í tveim hlutum; fyrri hluti er sígildari og þar tekur hann þekktustu óperíurnar, en í seinni hluta tekur hann alla sína vinsælustu slagara.
Miðasala hefst föstudaginn 13. desember kl. 10:00 á Tix.is en hægt er að skrá sig í forsölu á heimasíðu Senu.