Lífið er stútfullt af staðreyndum!
Þó sumar virðast vera aðeins ótrúlegri en aðrar þá eru hér nokkrar sturlaðar staðreyndir sem fá flesta til að glotta útí annað.
- Pör eru mun líklegri til þess að hætta saman heldur en einhleypir einstaklingar.
- Harry Potter bækurnar fá nafn sitt eftir aðal sögupersónu bókanna sem heitir Harry Potter
- Það eru fleiri manneskjur á lífi núna heldur en þegar þær voru færri.
- Teenae Mutant Ninja Turtles eru stökkbreyttar tánings skjaldbökur sem eru þjálfaðar sem ninjur.
- The Expendables 3 bíómyndin ber þetta nafn af því að hún er þriðja „Expendables“ myndin.
- Ef þú lokar augunum þá getur þú ekki lengur séð.
- Þú veist að það er kalt úti þegar þú ferð út og það er kalt.
- Pönnukökur eru kökur sem eru steiktar á pönnu.
- 10 af hverjum 10 kartöflum geta hvorki lesið né skrifað.
- Fólk fer í háskóla til þess að fá betri vinnu til þess að borga fyrir háskólann.
- Letidýr geta haldið niðri í sér andanum í allt að 40 mínútur, sem er lengur heldur en höfrungar sem þurfa að anda á 8-10 mínútna fresti.
