Jón Gnarr leggur til að járnbrautarteinar verði lagðir á milli Reykjavíkur og Akureyar.

Fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, athafnamaður og grínisti, Jón Gnarr leggur fram í færslu sem hann skrifar á Facebook síðu sína á dögunum að leggja ætti járnbrautarteina milli Reykjavíkur og Akureyar til vöru- og fólksflutninga með rafknúinni lest. Í færslunni fer hann ítarlega yfir þessa hugmynd sína og vangaveltur hvernig mætti hrinda þessu verkefni af stað.
Þetta kemur fram á Kaffið.is

„Frá Reykjavík í Borgarnes lægju teinarnir að mestu samhliða þjóðveginum. Lestin færi um göngin yfir Hvalfjörð, fræst úr malbikinu fyrir teinum. Göngunum væri lokað fyrir bílaumferð þann stutta tíma sem það tæki lestina að renna í gegnum þau. Það væri ekki oftar en 1-2 sinnum á sólarhring og ekki mikil truflun af því. Það er líka vert að athuga að eftir að lestin byrjar að ganga munu vöruflutningar með flutningabílum nær algjörlega detta niður og umferð minnka. Teinarnir fylgdu svo þjóðveginum, að mestu, fyrir utan nokkra hugsanlega útúrdúra og þar sem hentugara væri að gera lestargöng, alla leið til Blönduóss. Frá Blönduósi færu teinarnir eftir Þverárfjallsvegi til Sauðárkróks. Frá Sauðárkróki lægi leiðin yfir Tröllaskaga og til Dalvíkur og frá Dalvík til Akureyrar,“ skrifar Jón.

Jón Gnarr
Mynd: Nútíminn

Áframhaldandi lestarteinar.

Jón bætir svo við þegar þessu verkefni væri loks lokið væri hægt að skoða áframhaldandi teina frá Akureyri til Egilsstaða og þaðan til Reykjavíkur og þannig loka hringnum.

„Ég er hvorki verkfræðingur né sérstaklega kunnugur Tröllaskaganum og viðurkenni fúslega að ég hef aldrei lagt járbrautateina en mér sýnist þetta mjög vel gerlegt. Það er búið að gera, og verið að gera, svipaða hluti í Norður Noregi, Rússlandi og Síberíu,“ Skrifar Jón sem segist ekki geta séð framtíð samganga á landinu vera flugumferð, aðalega vegna þess hversu stórt kolefnisspor við skiljum eftir okkur með flugi.

„Við eigum vegakerfið og munum halda áfram að nota það en það var aldrei hugsað til þungavöruflutninga og er algjörlega komið að þolmörkum.
Ef við viljum í alvöru tryggja blómlega byggð um allt okkar fallega land þá eru lestarsamgöngur eina vitið og því fyrr sem við byrjum að skoða þetta því betra verður allt fyrir komandi kynslóðir, íbúa og gesti.“

Má bjóða þér að deila þessari síðu?
  • 13
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
    13
    Shares