Þær systurnar í Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og nágrenni ætla að standa fyrir látlausri göngu þann 25. nóvember sem markar upphaf 16 daga baráttu gegn kynbundnu ofbeldir á konum og stúlkum um víða veröld. Þessu er greint frá á vef 640.is
Mæting verður við Húsavíkurkirkju kl 18:00 þar sem séra Sólveig Halla Kristjánsdóttir sóknarprestur segir nokkur orð í upphafi göngurnar.

Gengið verður í gegnum bæinn og upp í Skrúðgarð Húsavíkur og að Kvíabekk sem er lítið og fallegt hús sem tilheyrir Skrúðgarðinum. Þar ætlar Adirenne Denise Davis að spila á þverflautu og að því loknu heldur Ósk Helgadóttir varaformaður verkalýðsfélagsins Framsýnar ræðu dagsins. Kaffi og piparkökur verða í boði fyrir göngufólk.
Kirkjan, umhverfis Kvíabekks og fleiri staðir verða lýstir upp og skreyttir með appelsínugulu sem er litur átaksins.
Alþjóðasamband Soroptimista hefur barist gegn kynbundnu ofbeldi í áratugi og er 16 daga vitundarvakningin mjög mikilvæg til að vekja athygli á þessum mannréttindabrotum. soroptimistaklúbburinn á rætur að rekja allt til ársins 1991.
Sameinuðu þjóðirnar hafa valið 25. nóvember, dag vitundavakningarnar um útrýmingu kynbundin ofbeldis og markar hann jafnframt upphaf 16 daga átakgs gegn því. Þessu átaki lýkur á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna, 10 desember sem er jafnframt alþjóðlegur dagur Soroptimista.
Sorotimistaklúbburinn bíður alla velkomna. Gaman væri ef sem flest göngufólk gæti klæðst eða skreytt sig með appelsínugulu og komið með einhver ljós t.d. vasaljós, síma, kerti eða kyndla.
Roðagyllum heiminn þann 25, nóvember.
Soroptimistaklúbbur Húsavíkur og nágrennis.