Jólaljósin tendruð í Ísafjarðarbæ

Helgarnar 30. nóvember – 1. desember og 7.-8. desember verða ljósin tendruð á jólatrjám í Ísafjarðarbæ.
Dagskráin verður með hefðbundnu sniði á hverjum stað, en búast má við ljúfum jólatónum og sagan segir að jólasveinar muni koma og gleðja bæði börn og fullorðna.

Á Ísafirði er tendrunin alltaf í tengslum við torgsölu Tónlistarskóla Ísafjarðar sem er skemmtilegur viðburður sem á sér langa sögu. Á torgsölunni er hægt að kaupa lummur og kakó, auk þess sem ýmis varningur, svo sem föndurvörur og jólaskreytingar eru til sölu.
Við tendrunina leikur Lúðrasveit TÍ fyrir gesti, auk þess sem barnakór syngur jólalög.

Einhver tónlistaratriði verða í boði á öllum stöðunum, auk þess sem fulltrúi úr bæjarstjórn flytur stutta tölu eða hugvekju. Þá annað hvort bjóða eða selja félagasamtök á hverju stað upp á heitan drykk og sætindi af einhverjum toga.

Jólatré tendrað á Ísafirði
Mynd: Ísafjarðarbær

Dagskráin fyrir hvern bæ fyrir sig

30. nóvember – Ísafjörður

Ljósin tendruð á jólatrénu á Silfurtorgi klukkan 16:00.
Torgsala á vegum Tónlisarskóla Ísafjarðar hefst klukkan 15:30

1. desember – Flateyri

Ljósin tendruð á jólatrénu á Flateyri klukkan 16:00

7. desember – Suðureyri

Ljósin tendruð á jólatrénu á Suðureyri klukkan 16:00

8. desember – Þingeyri

Ljósin tendruð á jólatrénu á Þingeyri klukkan 16:00

Trén sem sett eru upp í sveitarfélaginu eru þau ýmist fengin úr skóginum í Skutulsfirði eða úr skógrækt í Borgarfirði.
Tréð sem sett er upp á Silfurtorgi er gjöf frá Húsasmiðjunni og hefur það fyrirkomulag verið síðan Hróarskelda hætti að gefa sveitarfélaginu tré, en Hróarskelda dró sig úr öllum sínum vinabæjarsamskiptum árið 2007.

Má bjóða þér að deila þessari síðu?
  • 1
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
    1
    Share