Laust eftir kl. 14:00 í dag varð umferðarslys á Miðhúsabraut við Þórunnarstræti á Akureyri.
Þar var ekið á hjólreiðamann og var hann fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.
Frá þessu er greint á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi Eystra fyrr í dag.
Að sögn lögreglu er ekki vitað frekar um ástand hins slasaða, en lögregla óskar eftir því að vegfarendur taki tillit til þess að einhver röskun gæti orðið á umferð í nágrenni vettvangs þar sem unnið er að frekari rannsókn málsins.
