Khalid spilar í Laugardalshöll 25. ágúst

Súperstjarnan Khalid kemur fram í Laugardalshöllinni 25. ágúst 2020. Khalid er einn allra heitasti tónlistarmaður veraldar um þessar mundir og var nýlega titlaður einn áhrifamesti einstaklingur heims af Time 2019.

Khalid spilar í Laugardalshöll 25. ágúst 2020
Mynd: Sena Live

Það er Sena Live sem stendur fyrir þessum tónleikum, og mun miðasala á þessa veislu hefjast 13. desember klukkan 12:00. Fyrir heitustu aðdáendur er hægt að komast í forsölu miða sólahring áður en miðar fara í almenna sölu, en til þess að hafa tækifæri til þess þarf að skrá sig hér: sena.is/postlistar

2 gerðir af miðum eru í boði, en það er hægt að kaupa miða í stæði eða stúku.
Í stúku eru sætin númeruð og kosta þeir 15.990 kr á meðan þeir kosta 10.990 kr í stæði

Sló í gegn 2016

Khalid sló fyrst í gegn með laginu Location árið 2016. Hann gaf út sína fyrstu plötu American Teen árið 2017 sem innihélt Location auk Young Dumb & Broke, sem einnig sló rækilega í gegn. Hann hefur síðan ýtrekað toppað vinsældarlista um allan heim og hlotið fimm Grammy tilnefningar. 

Vermdi fimm efstu sæti Billboard listans

Khalid gaf út aðra plötuna sína, Free Spirit, í apríl 2019 og varð í kjölfarið fyrsti listamaðurinn til að verma öll efstu fimm sæti Billboard R&B vinsældarlistans, auk þess sem platan skaust í toppsæti Billboard Top 100 og náði fljótt platínusölu. 
Khalid hefur gefið út lög í samstarfi við magnaða listamenn á borð við Ed Sheeran, Calvin Harris, Marshmello, Shawn Mendez, Billie Eilish, Major Lazer, og Disclosure. 

Khalid – Mynd tekin 2018 á MGM Grand Garden Arena í Las Vegas
Mynd: Austin Hargrave

Mest spilaði tónlistarmaður veraldar á Spotify

Þegar þetta er skrifað er Khalid fimmti mest spilaði tónlistarmaður veraldar á Spotify þessa stundina. Hann er nú í tónleikaferðalagi um hnöttinn þar sem hann spilar á mörgum stærstu tónleikastöðum og tónlistarhátíðum heims, með viðkomu í Laugardalshöll.

Má bjóða þér að deila þessari síðu?
  • 10
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
    10
    Shares