Nýr matsölustaður opnar á Akureyri

Nýr og glæsilegur matsölustaður opnaði þann 13. Nóvember í menningarhúsinu Hofi Akureyri. Greint er frá þessu á kaffið.is.
Mastölustaðurinn ber nafnið Eyrin Restaurant sem er tilvísun í Eyrina á Akureyri. „Þar sem lögð verður áhersla á íslenski rétti þá vildum við hafa nafnið á íslensku“ segir Guðmundur Ragnar Sverrisson matreiðslumaður og eigandi Eyrarinnar.

Maturinn.

Samkvæmt Facebook færslu Eyrarinnar ætlar veitingastaðurinn að einblína á hádegishlaðborð á virkum dögum og jólahlaðborð sem jólabrunch um helgar. Með komandi ári mun Eyrin einnig fara bjóða upp á smárétti sem eru henntugir til að panta yfir drykk með góðum vinum.

Eigandinn.

Hjónin Guðumndur og Aðalheiður
Mynd: mbl.is

Eigandi Eyrinnar er hann Guðmundur Ragnar Sverrisson matreiðslumaður, hann er giftur konu sinni Aðalheiði Hannesardóttur og eiga þau saman fimm börn.

Guðmundur Ragnar útskrifaðist sem matreiðslumaður árið 2000. Eftir útskrift hóf hann störf á Hótel Sögu en árið 2002  flutti hann erlendis og starfaði í Brussel í tvö ár. Þaðan lá leiðin árið 2004 til Sviss þar sem Guðmundur starfaði á ýmsum veitingastöðum sem yfirmatreiðslumaður og lærði m.a. líbanska matargerð. Einnig starfaði hann sem matreiðslukennari í César Ritz hótelskólanum. Í Sviss kynntist Guðmundur eiginkonu sinni, Aðalheiði Hannesdóttir.

Árið 2012 ákvað fjölskyldan, sem þá taldi þrjú börn, að flytja til Íslands þar sem Guðmundur tók þátt í opnun ION hótels á Nesjavöllum og vann þar sem yfirmatreiðslumaður þar til árið 2014. Þegar fjórða barnið bættist í fjölskylduna árið 2014 kom enn eitt tækifærið í hendurnar en þá tók Guðmundur við starfi yfirmatreiðslumanns starfsmannamötuneytis PwC.

Nú toga ræturnar norður yfir heiðar en kona Guðmundar, Aðalheiður er fædd og uppalin á Akureyri og Guðmundur á Sauðárkróki. „Nú eru börnin orðin fimm og ræturnar toga yfir heiðar. Fjölskyldan hlakkar mikið til að koma norður og takast á við þessa spennandi áskorun,“ segir Guðmundur Ragnar.

Heimildir: Kaffið.isMorungblaðið, mbl.is

Má bjóða þér að deila þessari síðu?
  • 1
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
    1
    Share