Bakkabúðin ehf. (N1 verslunin á Flateyri) auglýsir eftir rekstraraðila.
Bakkabúðin er bensínstöð og verslun með ýmsar nauðsynjavörur, veitingasölu og vörur frá N1.
Leitað er eftir hugmyndaríkum aðila sem tæki að sér daglegan rekstur búðarinnar með breytingar í huga.
Nýr rekstraraðili þarf að geta tekið við um áramótin 2019/2020.

Mynd: Bakkabúðin
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir hugmyndaríkan einstakling sem hefur reynslu af rekstri og ríka þjónustulund.
Frábært tækifæri fyrir einstakling eða fjölskyldu sem vill breyta til og búa í litlu og vinalegu bæjarfélagi í faðmi vestfirskra fjalla.
Umsóknarfrestur er til 10. desember 2019
Tekið er við umsóknum og ferilskrá á:
bakkabudin@gmail.com
