Mikil svifryksmengun á Akureyri

Á vef Akureyrarbæjar er varað við mikilli svifryksmengun á Akureyri í dag og næstu daga.
Slíkt er algengt þar á bæ þegar að veðurfar er kalt og hægur vindur þar sem götur eru að mestu þurrar og töluvert af ryki er að finna á þeim eftir að vegir hafa verið sandaðir vegna hálku.

Mynd tekin af Akureyri.is

„Besta leiðin til að bregðast við loftmengun er að fólk nýti sér vistvænar samgöngur, eins oog að ganga, hjóla eða samnýta bíla. Þá er auðvitað frítt í strætó á Akureyri og er tilvalið að nota almenningssamgöngur á dögum sem þessum. Þannig fækkum við bílum á götunum og drögum úr svifryki“ segir á vef bæjarinns Akureyri.is

Fyrir áhugasama er hér hægt að sjá upplýsingar um svifryk í rauntíma samkvæmt loftgæðamæli við Strangdögu á Akureyri. Loftgaedi.is

Má bjóða þér að deila þessari síðu?
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •