Stefnt er að því á næstunni að breyta húsnæði við Laugaland á Þelamörk, sem áður var heimavist Þelamerkurskóla, í íbúðarhúsnæði. Þetta kemur fram á vef Hörgársveitar.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri í Hörgársveit, undirrituðu 23. nóv. s.l. viljayfirlýsingu þess efnis en yfirlýsingin felur í sér aðkomu stjórnvalda að húsnæðisuppbyggingu í Hörgársveit.

Mynd: Hörgársveit.is
Með því að breyta heimavistinni í íbúðarhúsnæði er hægt að fjölga leiguíbúðum í sveitarfélaginu. Mikið hefur verið um skort á húsnæðum í Hörgársveit og er það aðalega vegna nálægðar við Akureyrarbæ, þar sem mikill vöxtur hefur verið undanfarin ár.
Íbúðalánasjóður veitir þriggja milljóna króna þróunarstyrk.
Íbúðalánasjóður mun einnig koma að verkefninu og hefur sjóðurinn ákveðið að veita sveitarfélaginu þriggja milljóna króna styrk til þróunar verkefnisins. Styrkurinn er veittur sem hluti af sérstöku tilraunaverkefni sjóðsins, sem snýr að því að örva húsnæðisuppbyggingu utan suðvesturhorns landsins og bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaði, ekki hvað síst á landsbyggðinni.
„Að undanförnu hefur samskonar verkefnum verið ýtt úr vör víða á landsbyggðinni og eru fleiri í farvatninu. Eftir langvarandi stöðnun þykir mér afar ánægjulegt að fylgja þeim úr hlaði á hverjum stað fyrir sig. Ég hef lagt ríka áherslu á að húsnæðisskortur standi ekki atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni fyrir þrifum og bind vonir við að þessar aðgerðir styrki atvinnulíf hringinn í kringum landið,“ er haft eftir Ásmundi Einari í tilkynningu.