Nú hefur vangaveltur.is verið í loftinu í 2 vikur og höfum við lært helling á þessum stutta tíma.
Upprunalega var vefurinn hugsaður sem upplýsingavefur fyrir hin ýmsu málefni, en stuttu fyrir opnun var tekin ákvörðun um að bæta við og vera með léttar fréttir hér á síðunni.
Við höfum aftur á móti komist að því að okkur langar aðeins að breyta um stefnu er snýr að fréttaflutningi og færa okkur frá fréttum yfir í tilkynningar.
Því hefur nú fréttaflokk síðunnar verið breytt í „Tilkynningar“ og munum við setja þar inn hinar ýmsu tilkynningar er snúa sem dæmi að viðburðum, tónleikum, breytingum á þjónustum, opnunum verslanna og ýmislegt fleira í þeim dúr.
Við kjósum að flokka þessa síðu ekki sem fréttasíðu, heldur tölum við um okkur sem upplýsinga- og afþreyingarvef með fjölbreytt úrval af efni frá öllum landshornum og hinum ýmsu heimshornum.
Vonum við að lesendur okkar muni hafa gott notagildi af þessum breytingum hjá okkur og tökum við fagnandi á móti hinum ýmsu tilkynningum frá lesendum, rekstraraðilum fyrirtækja sem og öðrum.
Við höldum auðvitað áfram með fróðleikinn, brandarahornið, fyrirtækjakynningarnar og pistlana, ásamt því að við stefnum að því að koma umsagnar flokk í gagnið á komandi vikum.
