Góðgerðarpizza Domino’s sló öll met.

Miðvikudaginn þann 4. desember. 2019 afhentu Birgir Örn forstjóri Domino’s og Hrefna Sætran fjölskyldu Lofts Gunnarssonar upphæðina sem safnaðist með sölu Góðgerðarpizzunnar 2019.

Salan sló öll met og söfnuðust 6.773.282 kr. sem renna beint í Minningarsjóð Lofts Gunnarssonar

Hrefna Sætran og Birgir Örn að afhenda fjölskyldu Lofts Gunnarssonar upphæðina sem safnaðist við sölu á góðgerðarpizzunni.
Mynd: Domino’s Pizza – Ísland

Þetta er í annað skipti sem Domino’s fer í samstarf með minningarsjóði Lofts Gunnarssonar en árið 2014 tókst Domino’s með sölu á góðgerðarpizzunni að bæta aðstöðu heimilislausra töluvert, meðal annars með nýjum húsgögnum og nauðsynlegum heimilistækjum í fjögur athvörf heimilislausra í Reykjavík.

Í ár var áherslan lögð á stuðningsverkefni Minningarsjóðsins sem kallast „Aftur út í lífið“ og snýr að því að koma heimilislausum af götunni. Með sölu Góðgerðarpizzunnar er nú stefnt að opnun dagseturs fyrir heimilislausa.

Góðgerðarpizzan er unnin í samstarfi við Mjólkursamsöluna, Coca-Cola og Ali. Þakkar Domino’s þeim fyrir samstarfið.

Að lokum vill Domino’s þakka öllum viðskiptavinum sínum hjartanlega fyrir viðtökurnar á góðgerðarpizzunni þetta árið og þannig með hjálpast að við að bæta hag heimilislausra.

Má bjóða þér að deila þessari síðu?
  • 3
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
    3
    Shares